Exile

Ég lofaði að ég myndi tjá mig við og við hér í skugga Facebook bannsins, bæði í landinu og hjá fyrirtækinu. Ég er sem sagt búinn að sitja af mér tvær vikur af þeim sex mánaða vist í Rizhao og farinn að koma mér fyrir. Stærsta vandamálið er íbúðin. Sú íbúð sem mér var “úthlutað” er því miður ekki eins fögur og sagt var frá í auglýsingunni: rakaskemmdir, myglaður ísskápur og 1 cm ryk. Ofanálagt er ekki hægt að koma fyrir þvottarvél með góðu móti. En nú á að gera við skemmdirnar og mála íbúðina upp á nýtt, splæsa í nýjan ísskáp. Vona svo að ég geti flyst inn fljótlega eftir áramót, þeirri kínversku.

Leave a Reply